mánudagur, október 30, 2006

Var víst búin að lofa óléttubloggi, Snorri spurði mig í morgun hvort ég væri viss um að það væru ekki 2 börn í bumbunni, finnst greinilega mamma sín orðin ansi sver. Annars á ég að fara í svona vaxtarsónar á föstudaginn, mjög spennandi. Annars geri ég lítið annað þessa dagana en að borða og er búin að vera með craving í royal súkkulaðibúðing sem auðvitað fæst ekki hérna í DK, sem er kannski bara eins gott, er eflaust ekkert alltof hollur.

föstudagur, október 20, 2006

Er flutt og komin með netið eftir aðeins þriggja vikna bið, er ekki ennþá komin með heimasíma ætli það taki ekki aðrar þrjár vikur, en ég er sem sagt ekki með gamla heimasímann, hann fylgdi íbúðinni, en mér skilst að það séu nokkrir búnir að tala við hann Morten sem flutti í gömlu íbúðina. Er samt með sama gsm síma og vonandi fæ ég heimasíma sem fyrst. Over and Out.